|
|
Fréttir
14.12.2007 11:02:02
Fjárstoð flytur
Laugardaginn 15. desember
Þann 15. desember næstkomandi mun Fjárstoð flytja starfsemi sína að Smáratorgi 3 í Kópavogi. Við verðum staðsett á 6. hæð í húsinu. Hjá okkur starfsfólkinu er að sjálfsögðu mikil tilhlökkun yfir þessum breytingum og bjóðum við viðskiptavini okkar hjartanlega velkomna á nýja staðinn. Með þessum flutningum sameinast starfsemi félagsins á eina hæð. Við vonumst til þess að sem minnst rask verði á starfsemi Fjárstoðar á meðan flutningunum stendur. Til þess að auðvelda okkur flutningana þá hvetjum við viðskiptavini til að athuga næst þegar þeir koma til okkar á Stórhöfðann hvort þeir eigi ekki gömul gögn hjá okkur sem þeir gætu tekið með sér til baka.
| Til baka
|
|